BÍLASKEMMTANIR

Frábær leið til að bjóða eftirminnilega upplifun og stemningu.
Við útfærum og undirbúum hvaða bílaskemmtun sem er með þér.

tækniRÁÐGJÖF OG
BÚNAÐUR TIL LEIGU EÐA SÖLU


Bilaskemmtun mynd 1.jpg
 

Öðruvísi skemmtun og ótal möguleikar

Bílaskemmtanir njóta vaxandi vinsælda um allan heim og nú líka á Íslandi. Fólk kemur saman á stóru svæði og nýtur tónlistar, kvikmynda, veitinga og annarrar skemmtunar saman. Stemningin verður oft einstök því bílaskemmtanir eru hefð sem margir kynnast í kvikmyndum eða tónlistarmyndböndum.

Við setjum upp og undirbúum fjölbreytta viðburði fyrir bílaskemmtanir.

  • Dagskrá: Hér um bil hvaða skemmtun sem er getur orðið að bílaskemmtun. Dagskrárliðir geta til dæmis verið kvikmyndir, Kahoot leikir, tónlistaratriði, uppistand, beinar útsendingar eða Zoom myndbandshringingar.

  • Veitingar: Á skemmtuninni má selja fjölbreyttar veitingar, jafnvel taka pantanir rafrænt og skutla þeim í bílana á rafskutlum.

Sonik hefur tekið þátt í að halda vel heppnuð bílabíó í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og fleiri aðila. Þá setjum við upp risaskjái, undirbúum bílaplanið, stillum hljóð á rétta FM rás og sköpum flotta stemningu með fyrsta flokks hljóð-, mynd- og ljósabúnaði. Endilega hafðu samband og við finnum bestu leiðina til að halda flotta bílaskemmtun.